Eitthvað að gera.
Góðan dag gott fólk, er sammála síðasta ræðumanni að þetta rafting dæmi sé helvíti dýrt, gæti samt verið mjög gaman, hef ekki prófað þetta ennþá. Sá á netinu að það er hægt að fara í kajakferðir frá Stokkseyri og kosta þær frá 1700-3500 kr á mann en það er hægt að velja um nokkrar mismunandi ferðir þar sem er róið um fúamýrar og drullutjarnir í nágreninu, einstök upplifun að sagt er. Tekið var fram að ef fólk væri ölvað mætti það ekki fara. Svo er líka draugasetur í Þorlákshöfn, veit ekkert meira um það mál en það gæti verið athugandi að skoða það. Svo er líka ríkissalur Votta Jehóva á Selfossi en þangað gætum við fjölmennt á samkomu og frelsast ef allir eru rétt stemmdir og opnað Hornafjarðardeild Votta Jehóva fyrir austan í samkeppni við Steina Matt, Helga Georgs og Co. Ég tilnefni Pétur sem æðsta prest og andlegan leiðtoga:) En nóg um það, mér líst ágætlega á allt nema einhverjar hestaferðir því að hestar eru löngu úrelt illa lyktandi sískítandi farartæki sem ekki ber að koma nálægt fyrr en eftir söltun og klukkutíma suðu ásamt kartöflum. Biðst forláts ef einhverjum hefur sárnað þessi ummæli en þetta er jú staðreynd. Jæja hvað segiði?
Kveðja Eymundur.
Kveðja Eymundur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home