Snillingarnir snúa aftur!

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Þrastalundur 2004

Jæja loksins er ég rin upp frá dauðum eftir mikla drykkjuhelgi og get því farið að einbeita mér að næstu útileigu. Ég stakk upp á því við Pétur á HÁH að við færum í siglinu niður Hvítá. Ég veit að vísu ekki hvað það kostar en það má tjekka með hópafslátt eða tilboð. Það væri gaman að hafa e-ð prógramm og e-ð að gera. Við gætum krúsað niður Hvítá, farið svo í Þrastarlund og byrjað að sukka og grilla og hafa eitthvað gigg. Ég legg til að e-r komi með gettóblaster svo við geturm hlusta á Grimm dúndur, Reif í sundur, Nirvana, Metalica og hámarkað þannig nostalgígjuna okkar. Það væri líka gaman ef einhver myndi nenna að koma með myndir, en ég á eflaust e-r albúm heima sem ég gæti komið með...það fær kannski við misjafnar undirtektir eða hvað?!

Það væri sniðugast að reyna að sameinast með ferðir upp á að við getum jafvel fylgst að og komið á svipuðum tíma. Væri ekki fínt að leggja af stað úr bænum 2-3 og fara þá í siglingu (sem tekur dágóðann tíma held ég). Síðan myndum við fara upp í Þrastalund og tjalda og grilla og djúsa fram til morguns. En hvernig er það, er eitthvað B-plan ef það verður rigning??

Yfir til ykkar!

Brynja

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home