Snillingarnir snúa aftur!

þriðjudagur, júlí 06, 2004

Ferðir!!

Jæja fólk hefur ekki mikið að segja um hvað skal gjöra þennan merka laugardag. En okkur Pétri var að detta í hug að fara bara í brennó, Löggu og bófa eða eitthvað slíkt ;)!!
Svo með flutiningana á staðinn. Eigum við ekki að reyna að sameinast í bíla? Ég fer á bíl (þar sem það er nú ekki um svo marga aðra að ræða á mínu svæði ;)) og það er pláss fyrir 4 með mér og nokkuð stór farangursgeymsla (engin takmörk fyrir að koma með nóg af "nesti").
Eitt enn. Hverjir ætla pottþétt að koma 24. júlí í Þrastarskóg, hverjir koma ekki og hverjir vita það ekki alveg? Vinsamlegast tjáið ykkur hér á blogginu svo hægt sé að telja þetta saman.
Bæjó í bili
Þórey

1 Comments:

  • Ég er svona 99% öruggur með að mæta á svæðið. Ég verð að öllum líkindum á eigin bíl fullum af fólki svo ég get því miður ekki boðið far.

    Kveðja
    Gulli

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home